KVENNABLAÐIÐ

Ilmkerti sem ilmar eins og nýsteiktur kjúklingur KFC? Já, takk!

Í Nýja-Sjálandi hefur KFC keðjan gefið einum heppnum KFC unnanda ilmkerti með sætri (allavega ljúffengri) lykt af steiktum kjúklingi. Var þetta liður í markaðsherferð sem fyrirtækið stóð fyrir á samfélagsmiðlum. Keppni var haldin um hversu margir líkuðu við og svöruðu færslum sem fyrirtækið setti á síðuna sína.

Auglýsing

„Hvað er betra en að lýsa upp myrkrið með kerti sem ilmar eins og KFC?“ var sagt og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Keppnin endaði þann 5. desember og fékk færslan meira en 15.000 svör. „Eruð þið ekki að grínast? Kerti sem ilmar eins og KFC? Hvar get ég fengið þannig?“ voru nokkur af svörunum. Einn meira að segja stakk upp á því að KFC myndi gefa út sleipiefni fyrir pör með bragði af KFC…

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!