KVENNABLAÐIÐ

Lady Gaga mun leika Donatellu Versace í American Crime Story

Sá orðrómur hefur gengið fjöllum hærra að engin önnur en Lady Gaga muni leika tískudrottninguna Donatellu Versace í þriðju seríu „American Crime Story,“ og nú lítur út fyrir að fótur sé fyrir þeim sögnum. Fyrir helgi staðfesti Us Weekly samkvæmt „ónefndum heimildarmanni“ að Gaga muni í raun leika Donatellu í 10 þáttum sem fjalla um morðið á bróðir hennar Gianni sem myrtur var í júlí árið 1997 fyrir framan heimili sitt á Miami Beach af fjöldamorðingjanum Andrew Cunanan.

Auglýsing

Byrjað verður að taka upp þættina snemma árs 2017. Framleiðandi þáttanna, Ryan Murphy, er góður vinur Lady Gaga og lék hún í fimmtu seríu af „American Horror Story“ og einnig elskar Donatella hana…það er ekki skrýtið að hún verði fyrir valinu!

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!