KVENNABLAÐIÐ

Mikið daður í afmælisveislu: Drake og Taylor Swift nýjasta parið?

Hvað er eiginlega að gerast í ástarlífum stjarnanna þessa dagana? Fólk hefur varla undan að fylgjast með örum skiptum á mökum! Drake og Rihanna voru sjóðandi heitt par fyrir „kortéri síðan“ en það kláraðist fljótt. Taylor Swift var með Calvin Harris og byrjaði strax með Tom Hiddleston eftir það og NÚ: Drake?

Auglýsing

Söngvarinn Drake hélt uppá þrítugsafmælið sitt en hann er einn vinsælasti tónlistarmaður í heimi þessa dagana og velti jafnvel sjálfum poppkónginum Michael Jackson úr toppsætinu með mest seldu smáskífu allra tíma um daginn. Samkvæmt Hollywood Life var Taylor að daðra mikið við Drake og sáust þau láta vel að hvort öðru: „Þau sáu engan annan en hvort annað. Þau voru ekki að kyssast en snertust heilmikið.“

Í veislunni voru líka Katy Perry (hún og Tay þola ekki hvor aðra) og þeirra sameiginlegi fyrrverandi – John Mayer. Vandræðalegt?

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!