KVENNABLAÐIÐ

Donald Trump bjó til ömurlega sögu um Salma Hayek þegar hún neitaði að fara út með honum

Ef þú hefur ekki verið á netinu undanfarna mánuði veistu sennilega ekkert um karlrembu Donalds Trump. Hér er lítil saga sem undirstrikar allt sem er að þessum manni.

Leikkonan Salma Hayek hitti Donald áður en hann byrjaði með Melania og áður en hún varð jafn fræg og hún er í dag. Sagði hún í viðtali við El Show del Mandril í Los Angeles:

„Þegar ég hitti þennan mann átti ég kærasta. Donald reyndi að verða vinur hans til að fá hjá honum símann minn. Fékk hann númerið á endanum og hringdi hann oft til að bjóða mér út. Ég sagði við hann að ég myndi aldrei fara með honum út, jafnvel þó ég ætti ekki kærasta. Hann tók því mjög illa og í kjölfarið birtist saga í National Enquirer um að hann hefði verið að reyna við mig. Ég sagði engum frá því en einhvernveginn komst það í blaðið. Hann svaraði og sagðist aldrei munu hafa boðið mér út – ég væri allt of lítil.“

Auglýsing

Salma heldur áfram: „Hann hringdi svo og sagði ótrúlegt að einhver hefði birt þessa vitleysu: „Trúir þú þessu? Hver ætli hafi sagt þetta? Ég vil ekki að fólk haldi þetta um þig!“

Ekta Donald í samskiptum við konur? Við teljum að svo sé!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!