KVENNABLAÐIÐ

Victoria Beckham gengur til liðs við Target

Næsta vor (2017) verður hægt að fá fatnað sem hannaður er af engri annari en Victoriu Beckham í bandarísku stórversluninni Target. Victoria segir frá þessu í viðtali við  Business of Fashion og lýsir stílnum sem afar stelpulegum, glöðum og skemmtilegum.

Mun hún hanna á konur, stúlkur og börn – sem verður í fyrsta skipti fyrir hana en hún segist hafa orðið fyrir innblæstri þegar hún gekk með einu stúlkuna sína, Harper: „Þetta var fullkominn tími til að hanna á börn og að vinna með Target gefur mér tækifæri á að bjóða öllum mæðrum upp á fatnað á viðráðanlegu verði.

Auglýsing

Fatnaður kvennanna mun vera í stærðum Xs-3XL þannig flestar ættu að geta fundið eitthvað við hæfi! Fatnaðurinn verður til sölu frá og með 9. apríl 2017 þannig ekki er úr vegi að plana vorferð til Bandaríkjanna á næsta ári…

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!