KVENNABLAÐIÐ

Myndasería af þybbnum köttum slær í gegn

Kanadíska ljósmyndaranum Peter Thorne fannst þybbnir kettir verðskulda athygli og finnst þeir sætustu kettirnir. Gerði hann áður myndaseríu af eldri hundum sem vakti mikla athygli og vildi hann fanga þessa risastóru loðbolta á filmu. Auglýsti hann eftir þybbnum köttum til myndatöku og segir hann að viðbrögðin hafi verið ótrúleg: „Ég gerði mér ekki grein fyrir að gæludýr í ofþyngd væru svona mörg.“

Auglýsing

Fyrst lét hann eigendurna koma með kettina í stúdíóið heim til sín, en það reyndist ekki góð hugmynd: „Kettirnir urðu bara brjálaðir. Þeir héldu greinilega að þeir væru á leið til dýralæknisins eða eitthvað. Þannig ég fór heim til þeirra – kettir eru greinilega bestir í sínu eigin umhverfi.“

Útkoman er hinsvegar æðisleg…sjáðu myndirnar (smelltu á þær til að sjá stærri):

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!