KVENNABLAÐIÐ

Ný og gullfalleg hönnunarverslun Helgu og Erlings á Hverfisgötunni

Gullsmiðirnir Helga Ósk Einarsdóttir og Erling Jóhannesson hafa verið áberandi í hönnunar- og handverkssenunni í Reykjavík undanfarin ár og nú hafa þau opnað nýja verslun og vinnustofu að Hverfisgötu 39, í hjarta Reykjavíkur.

Frá opnuninni þann 22. september síðastliðinn
Frá opnuninni þann 22. september síðastliðinn

Verk þeirra Helgu og Erlings spanna breitt svið skartgripahönnunnar – allt frá hefðbundnum skartgripalínum upp í verk sem ramba á mörkum hönnunnar og stakra listaverka. Þau eiga bæði glæstan og farsælan feril sem gullsmiðir og hafa sýnt verk sín bæði hér heima og erlendis – á einkasýningum sem og á samsýningum.

e6

Á Hverfisgötunni hafa þau Erling og Helga búin að skapa umhverfi og sýningarrými þar sem upplifunin er einstök og hæfir sérstakri hönnun þeirra og vönduðu handverki.

Hverfisgata 39
Hverfisgata 39

 

e2

e1

e3

e4

www.erlingurjohannesson.is

www.helgaosk.is

e-in

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!