KVENNABLAÐIÐ

Heimili Khloé og Kourtney Kardashian: Myndir

Stórkostleg hús! Systurnar Khloé og Kourtney hafa verið hluti af almennu sjónvarpsefni síðan 2007 en hafa þó ekki sýnt mikið inn í húsin sín. Þær eiga báðar að sjálfsögðu afskaplega falleg hús en þau eru mjög ólík. Stílar systranna eru báðir æðislegir en hvor finnst þér hafa vinninginn?

Þessar myndir voru teknar fyrir Architectural Digest og við hreinlega elskum að skoða þessar myndir. Mundu að þú getur smellt á myndirnar til að sjá þær stærri!

Auglýsing

a-kloe

Eldhúsið hjá Khlóe. Hún lýsir því sem sæluríku athvarfi. Þess má geta að hún keypti húsið af Justin Bieber á sínum tíma.

kl1

Hjá Khloé: Þarna má snæða dögurð á góðum dögum og lýsir stílum systranna á ágætis hátt: „Smekkur okkar á húsgögnum er ótrúlega ólíkur. Þegar við förum að versla húsgögn sýnir Kourtney mér nútímalega hönnum. Svo sýni ég henni framandi og fallega hluti og þá segir hún bara: „Mér finnst allt ömurlegt hérna.“

 

kl2

Fataherbergi Khloé. Hún segir: „Ég man alltaf eftir fullkomnum fataskáp pabba. Þess vegna erum við systurnar fullkomnunarsinnar – við vorum aldar upp þannig.“

Auglýsing

kl3

Stofan hjá Kourtney: Afar symmetrískt, einlitt með smá lit… Gullfallegt engu að síður.

kl4

Barnaherbergi Mason, Penelope og Reign – barna Kourtneyar. Sennilega best að lýsa því sem þarna sé allt sem þau dreymir um.

 

kl5

Toskanastíll Kourtney í bland við nútímalist. Innanhússhönnuðurinn Martyn Lawrence Bullard hannaði vinnuherbergið hennar. Kourtney segir sjálf: „Ég er mjög hrædd við liti, en þegar þú átt börn máttu ekki vera svona stífar reglur. Martyn kom inn með liti sem ég gat sætt mig við.“

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!