KVENNABLAÐIÐ

Besta leiðin til að reima skóna! – Myndband

Fullorðnir kunna að reima skóna sína….en hvað með börnin? Stundum hefur reynst erfitt að kenna þeim það en Kirsten Johnson, móðirin bak við Unstoppable Mother, gaf út myndband sem heftur heldur betur slegið í gegn á netinu, sjö milljónir hafa séð það nú þegar.

Auglýsing

Kirsten á einhverfan son sem hefur átt í erfiðleikum með að læra að reima og fannst honum taka of langan tíma: „Hann hefur verið í vandræðum með kanínueyrun“ segir hún í myndbandinu. Þeir sem hafa skrifað athugasemdir við myndbandið hafa almennt verið ánægðir: „Ég prófaði aðferðina með syni mínum sem er 11 ára og einhverfur. Ég hef aldrei getað kennt honum. ÞETTA VIRKAÐI!!!!“ sagði eitt foreldri.

Heimild: HuffingtonPost

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!