KVENNABLAÐIÐ

Þegar Reykjavíkurdætur rústuðu Hróarskeldu

Reykjavíkurdætur hafa algjörlega átt sviðið síðustu vikur og mánuði með nýrri plötu, rosalegum útgáfutónleikum og undirbúning á sýningu í Borgarleikhúsinu næsta vor. Í sumar sló hópurinn allsvakalega í gegn á Hróarskeldu þar sem rúmlega 8000 manns horfðu á þær spila. Auk þess að troða upp fyrir allan þennan fjölda spiluðu þær einnig lagið „Ógeðsleg“ í litlu hjólhýsi á vegum Nordic Playlist.

Auglýsing

Myndband frá uppákomunni er nú komin á netið og frammistaðan hreinlega frábær!

Nordic Playlist er vefsíða með það markmið að kynna norræna tónlist fyrir heiminum. Þannig mæla tónlistarmenn frá Norðurlöndum með uppáhalds lögunum sínum. Meðal þeirra sem hafa sett saman Nordic Playlist eru Of Monsters And Men, Zara Larsson, Lykke Li og Trentemøller ásamt fleirum.

Nánari upplýsingar um Nordic Playlist

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!