KVENNABLAÐIÐ

Eyrarbakki, Selfoss og Hveragerði: Ljósadýrð á ágústnótt

Andar lýsa um ágústnóttina austan fjalls og er listaverkið staðsett á Eyrarbakka um þessar mundir. Hvetjum við alla til að kíkja á þessa flottu listasýningu!

Mikil ljósadýrð er á Eyrarbakka, Selfossi og Hveragerði um þessar mundir. Listahópurinn Tura Ya Moya, undir forystu dönsku listakonunnar Karen Thastum, heimsækir söfn Árnessýslu og sýnir listaverk sem gengur undir grænlenska nafninu Anersaaq eða Andi á íslensku. Opnunarkvöld Anersaaq – Andanna verður við Húsið á Eyrarbakka fimmtudagskvöldið 25. ágúst og hefst kl. 21.30 með kynningu og tónlistarviðburði. Allir velkomnir og kvöldopnun verður á safninu.

Um er að ræða ljósagjörning utandyra þar sem mynd og hljóð tvinnast saman á magnaðan hátt. Listaverkið er alþjóðlegt og ferðast á milli smárra byggða í Noregi, Íslandi, Grænlandi og Danmörku. Hér á Íslandi heimsækir listahópurinn Byggðasafn Árnesinga á Eyrarbakka 25. – 28. ágúst Héraðsskjalasafn Árnesinga á Selfossi 29. og 30. ágúst og verður á Listasafni Árnesinga í Hveragerði fram til 9. september.

qqqq

Við Listasafnið verður opnunarviðburður kl. 9 að kvöldi fimmudaginn 1. september. Byggingar safnanna verða á þessum tíma sem sagt baðaðar ljósi að kvöldlagi við tónlistarundirleik. Vinnusmiðjur verða haldnar samhliða sýningunni og listamenn færa síðan afraksturinn í margmiðlunarbúning. Á þann hátt bætist stöðugt efni við listaverkið sem verður að lokum bræðingur af anda hvers staðar. Fyrsta vinnusmiðjan verður í safninu á Eyrarbakka föstudaginn 26. ágúst frá kl. 16.00 -18.00. Aðstaða Tura ya Moya er gámur sem gegnir hlutverki vinnustofu og sýningarklefa. Gámurinn flakkar á milli landa og staða og er núna staðsettur inni í garði Hússins á Eyrarbakka. Í för með Karen verða listamennirnir Udo Erdenreich og Mia Lindenhann en fjölmargir aðrir leggja verkefninu lið. Nánari upplýsingar má sjá á vefsíðu verkefnisins www.anersaaq.com og heimasíðum safnanna.

Byggðasafnið hefur hlotið styrki fyrir verkefnið frá Safnaráði, Uppbyggingasjóði Suðurlands og JÁVerk auk þess að fá ómetanlegan stuðning frá Eimskip. Einnig hafa hjónin Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson veitt verkefninu dyggan stuðning. Verkefnið á alþjóðavísu er styrkt m.a. af Kulturkontakt Nord og NAPA.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!