KVENNABLAÐIÐ

Michelle Obama í strigaskóm við kjól

Meira að segja forsetafrú Bandaríkjanna elskar að vera í strigaskóm við kjól! Fjölskyldan er nýkomin frá Martha’s Vineyard, Massachusetts, í gær eftir 16 daga vel heppnað frí.

Sumarið er að enda en Michelle naut síðustu augnablikanna og var í glænýjum hvítum Converse Chuck Taylors. Malia dóttir hennar var í svipuðum stíl enda um afskaplega flottar mæðgur að ræða. Sasha var í sandölum og litu þau öll út fyrir að njóta síðustu daga sumarsins saman!

 

 

michelle ob

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!