KVENNABLAÐIÐ

Notaði Airbnb íbúð til að taka upp klámmynd og olli meira en milljón króna tjóni

Ekki eru allir leigjendur Airbnb jafn heiðarlegir. Sharon Marzouk sem býr í Silicon Valley, Kaliforníu, segir að heimili hennar hafi verið „rústað“ eftir að leigjandi hafði tekið upp klámmyndir í íbúðinni. Þekkti Sharon myndirnar sem sendar voru á hana en þær voru teknar í baðherberginu hennar. Mikið vatnstjón varð af völdum leigjandans þar sem virðist sem hann hafi yfirgefið íbúðina með vatn rennandi í baðið.

Sharon sem lenti illa í því...
Sharon sem lenti illa í því…

Sharon leigir út nú þegar önnur tvö herbergi til leigjenda en ákvað að leigja út íbúðina þegar hún fór út í viðskiptaferð.

Auglýsing

Kona að nafni Vera hafði samband eins og sjá má í meðfylgjandi pósti:

airbnb2

Kom síðar í ljós þegar Sharon tók við íbúðinni að „Vera“ hafði komið fyrir aukalýsingu í baðherberginu ásamt fleiru til að taka upp myndbönd.

Fann Sharon þegar hún kom heim, mikið af smokkum, óhreinum þurrkum í ruslinu, víbrator í baðkarinu og einhver hafði notað háhæluðu skóna hennar (í einhverjum tilgangi…)

„Handritið" að myndinni sem hún fann meðal annars í íbúðinni
„Handritið“ að myndinni sem hún fann meðal annars í íbúðinni
Auglýsing

HÉR má lesa færslu Sharon um martröðina hennar að leigja hjá Airbnb og hér má sjá myndband af íbúðinni:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!