KVENNABLAÐIÐ

Bjó til 10 reglur fyrir kærastann áður en hann fór til útlanda í strákaferð

Sitt sýnist hverjum um samskipti þessa pars, en kærastan Whitney Travers frá Edinborg, Skotlandi, bjó til afar ítarlega bók fyrir kærastann áður en hann fór til Magaluf á Spáni í sólarlandaferð. Kieran Lumsden tvítaði svo færslunni og sagði Whitney hafa „tekið geðveikina sína upp á næsta stig.“ Hefur færslunni verið deilt mörg þúsund sinnum og fólk annaðhvort hrósað henni fyrir hreinskilnina eða vorkennt honum.

Auglýsing

straka f

straka1

straka2

Auglýsing

Á myndunum sem Whitney myndskreytti svo fallega er að finna þessar 10 reglur:

 

Passaðu að síminn sé hlaðinn ALLAN TÍMANN! Hringdu í mig a.m.k. einu sinni á dag (2 mín)

Engar stelpur yfir höfuð. Ekki horfa. Ekki tala. Ekki snerta!!!!! (Chet og ég munum eyðileggja allt Celtic, ég mun gera líf þitt að lifandi helvíti. Kim mun verða sagt frá þessu líka.

Ekki fylgja stelpum á samfélagsmiðlum

TATTOO = NAH, þú munt verða skoðaður þegar þú kemur heim

EKKI blanda drykkjum „DRUGS ARE FOR MUGS“

Ef farið er í bátapartý, enga drykkjuleiki með gagnstæðu kyni

Sofðu í þínu eigin rúmi

Ekki kaupa drykki handa stelpum. Þeim pening er betur varið í mig.

Sendu Kim skilaboð á hverjum degi! Hún mun hafa áhyggjur

Þú segir öllum stelpum frá mér ókei – ef einhver daðrar, LABBAÐU Í BURTU

ENGAR MYNDIR AF ÓKUNNUM STELPUM EÐA SÖGUM Á SAMFÉLAGSMIÐLUM

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!