KVENNABLAÐIÐ

Jennifer Lopez er barnshafandi!

Óvæntar fréttir! Jennifer Lopez, 47, er ólétt! Hyggst poppstjarnan giftast kærastanum sínum Casper Smart áður en barnið kemur í heiminn. Tímaritið Life & Style heldur þessu fram. Casper, sem er 29 ára og semur dansana fyrir hana, segist afar spenntur og vill að þau gangi upp að altarinu áður en barnið fæðist: „Hann óskar sér einskis heitar en að Jennifer vilji giftast honum,“ segir ónafngreindur heimildarmaður í viðtali við tímaritið.

Auglýsing

Segir þó þessi heimildarmaður að hún sé mjög spennt eingöngu fyrir að eignast barnið í fyrstu: „Hún hefur sagt honum að einblína á eitt skref í einu.“ Jennifer á tvíburana Max og Emme sem fædd eru árið 2008 en hefur oft tjáð sig um að hún vilji eignast fjögur eða fimm börn.

Gleðifréttir fyrir þetta fallega par! ljo

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!