KVENNABLAÐIÐ

Kristen Stewart segist „mun hamingjusamari“ að eiga í sambandi við konu en karl

Leikkonan Kristen Stewart opnar sig varðandi kynhneigð sína í nýju viðtali í breska Elle sem enn er óútgefið. Segir hin 26 ára leikkona að hún eigi í sambandi við kvikmyndaframleiðandann Aliciu Cargile sem hefur þó verið brösótt: „Akkúrat núna er ég afar ástfangin af kærustunni minni,“ segir Kristen í viðtalinu. „Við höfum stundum hætt saman og byrjað aftur saman og núna finnst mér: „Vá, loksins get ég fundið tilfinningar á ný.“

Parið hefur sést oft saman, m.a. á Cannes hátíðinni. Játar Kristen að hún getið talað mun opinskáar um samband sitt núna þar sem hún er í sambandi við konu: „Þegar ég var að hitta karlmann þurfti ég alltaf að fela allt. Ég gerði það því mér fannst ég alltaf ómerkileg og mér líkaði ekki hvernig mér leið. Mér fannst eins og við værum að leika einhver hlutverk og værum í einhverri fáránlegri teiknimyndabók. Mér leið eins og ég væri í tilbúnu sambandi sem það ætti ekki að vera. Mér fannst það ömurlegt. En allt breyttist eftir að ég átti í sambandi við konu,“ segir leikkonan.

Auglýsing

„Mér fannst: Í raun og veru að fela þetta lætur fólk draga þá ályktun að ég skammist mín fyrir það svo ég þurfti að ákveða hvernig ég ætlaði að gera þetta fyrir opnum tjöldum. Þetta opnaði líf mitt og ég er miklu hamingjusamari fyrir vikið.“

Viðtalið verður í Elle UK sem kemur í búðir þann 3. ágúst.

Kristen og Alicia
Kristen og Alicia

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!