KVENNABLAÐIÐ

Lady Gaga fékk loksins bílpróf: Sjáðu mynd af henni bak við stýrið!

Lady Gaga komin á götuna: Söngdrottningin fagnaði þrítugsafmælinu sínu fyrir nokkrum mánuðum en fagnaði hinsvegar nýjum áfanga sem flestir fagna fyrir tvítugt: Bílprófinu.

Söngkonan fór á Instagram til að upplýsa aðdáendur sína og birti mynd af sér við stýrið. Var mömmuskrímslið (Mother Monster eins og hún kallar sig þegar hún talar við aðdáendur sína) í gallasamfestingi, svörtum topp og með derhúfu sem snýr öfugt. Hún var úti að keyra með vinkonu sinni, sennilega í Malibu, Kaliforníu.

Sagði hún við ´gramið sitt:

„Thelma and Puhleaaaze (And yes I FINALLY got my license after years of driving w an adult present and a learners permit) IM FREE Rollin w the homies!“

 

 

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!