KVENNABLAÐIÐ

Hvað þýða fæðingarblettirnir í andlitinu á þér?

Það getur vel verið að það kunni að koma þér spánskt fyrir sjónir að lesa í fæðingarbletti í andlitinu. En vissir þú að sú iðja hefur verið stunduð síðan á 16.öld? Kíktu í spegilinn og segðu okkur hvort þetta eigi við þig!

 

moles

 

1-3

Þegar þú varst krakki varstu uppreisnargjarn og hafðir frjálsan vilja. Þú hefur í dag sköpunarkraft og vinnur best við þegar þú átt tíma aflögu. Oftast kann fólk að meta afstöðu þína til lífsins. Ef þú ert með fæðingarblett á þessum stöðum kanntu vel við þig í viðskiptum og átt betra með að vinna fyrir þig sjálfa/n en vinna fyrir einhvern annan. Þú berð gæfu til að vera þinn eigin herra.

4

 

Þú ert hvatvís manneskja – þú kemur fram af krafti, svo að segja –fólk sér þig sem manneskju með ögrandi framkomu og þú ert sterkur persónuleiki. Ef þú færð of marga valmöguleika getur komið upp vandi. Þú átt til að rífast en ekkert sem hefur alvarlegar afleiðingar. Þú hefur mikið skap en getur komist yfir vanda á stuttum tíma. Ef þú fjarlægir þennan fæðingarblett muntu verða rólegri manneskja og í meira í takt við alheiminn.

Auglýsing

5

 

Ef þú hefur fæðingarblett rétt fyrir ofan augnabrún gefur það til kynna að þú búir yfir mikilli gæfu í lífi þínu…þú þarft hinsvegar að vinna fyrir henni – og kannski harðar en annað fólk. Það sem þú vinnur þér inn þarf að passa vandlega því fólk kann að verða afbrýðisamt út í þig vegna þess og beitir það ýmsum bolabrögðum til að komast nær þér. Passaðu þig á fólki sem hefur „frábærar viðskiptahugmyndir” því þú mátt ekki treysta fólki um of. Fylgdu innsæi þínu alla leið og vertu varkár. Aldrei leyfa neinum að sjá um fjármálin þín – það á að vera 100% í þínum höndum.

 

6

Fæðingarblettur hér gefur til kynna að þú ert afar gáfaður einstaklingur og hefur einstaka sköpunargáfu. Listrænir hæfileikar þínir gætu fært þér frama, peninga og hvaðeina…en þú verður að ákveða sjálf/ur hvað þú vilt gera við þessa hæfileika. Við mælum með að fylgja hjarta þínu alla leið. Velgengnin mun knýja dyra óskir þú þess og sértu hugrökk/hugrakkur.

7

 

Fæðingarblettir undir augnabrúnum gefa til kynna að þú hefur átt í stormasömu sambandi við fjölskyldu þína og þína nánustu af einhverjum ástæðum. Þú ert ekki sátt/ur við það og hefur þetta valdið þér mikilli hjartasorg í gegnum tíðina og hefur það haft mikil áhrif á líf þitt. Eina leiðin til að laga þetta er að sættast við fjölskyldumeðlimi þína til að hjarta þitt verði frjálst.

Auglýsing

8

Þetta er ekki góður staður fyrir fæðingarblett. Fjármálin þín eru stöðugt undir pressu þar sem þú átt til að eyða um efni fram. Þú gætir jafnvel glímt við spilafíkn eða gætir gert það í framtíðinni. Þú þarft virkilega að vera meðvituð/meðvitaður um hvenær á að STOPPA. Einnig hefur fólk með fæðingarblett á þessum stað tilhneigingu til að vera daðurgjarnt…bæði við sitt kyn sem og hitt kynið. Þú þarft virkilega að vera á tánum þegar kemur að daðri – ekki vera óábyrg/ur.

9

Fæðingarblettur á þessum stað gefur til kynna kynferðisleg vandamál….við mæum með að þú fjarlægir hann! Hann er ekkert annað en vandræði.

10

Fæðingarblettur hér gefur til kynna að þú sért heppinn einstaklingur. Þú ert í góðu sambandi við fjölskyldu og munt eignast mörg börn og barnabörn. Þú hefur fullan stuðning þeirra sem eru í kringum þig og munt lifa fullnægjandi og dásamlegu lífi!

11

Hafir þú fæðingarblett á þessum stað getur það táknað að þú eigir til að verða veik/ur á ólíklegustu tímum. Við mælum með að fjarlægja hann (sérstaklega ef hann er dökkur) – feldu hann annars með farða.

12

Þessi staðsetning gefur til kynna heilbrigt líferni og allt í jafnvægi. Þú gætir bæði verið ríkur einstaklingur og kannski frægur líka! Þrátt fyrir að vera í þessum efsta riðli hefur þú líka hæfileikann til að eiga fallegt fjölskyldulíf. Konur með fæðingarblett á þessum stað eru oftast heppnar, fallegar og glæsilegar.

13

Börnin þín munu hafa mikil áhrif á líf þitt….reyndu að gera allt til að laga og endurbæta sambandið við þau. Þú þarft virkilega að læra þolinmæði!

14

Þú gætir átt í óheilbrigðu sambandi við mat sem hefur áhrif á allt líf þitt. Þú gætir haft einhverskonar fæðuofnæmi eða einfaldlega borðar of mikið…

15

Þér líkar að flytja oft og breyta til, ekki satt? Þú elskar nýja hluti og ert alltaf með hugann við að breyta og bæta. Þig langar að sjá heiminn og ert aldrei sátt/ur á einum stað til lengdar. Þér finnst gaman að ferðast og lenda í ævintýrum og auga þitt er alsjáandi.

16

Þú þarft að passa vel upp á mataræðið….og einnig kynlífið þitt. Þetta eru þín stærstu vandamál. Annaðhvort ertu of þung/ur og hefur það mikil áhrif á sálarlífið þitt. Svo áttu oft í erfiðleikum með kynlífið/samböndin þín. Þú hneigist til að tengjast of mörgum í einu og verður sakbitin/n vegna þess

17

Þú ert mikið sjarmatröll. Þú kannt virkilega að umgangast fólk og kannt líka að tala. Það stígur þér stundum til höfuðs og þú þarft að hugsa vel um hvernig þú ferð með þessa velgengni og hæfileika þína. Þú þarft að athuga hvaðan sjálfsvirðingin kemur – er það frá þér sjálfri/sjálfum eða hvað öðrum finnst um þig?

18

Þú ert manneskja sem er stöðugt á hreyfingu – bæði andlega og líkamlega. Ferðalög þreyta þig og þú þarft að hugsa vel um hvernig þú eyðir tímanum heima við þegar þú ert þar.

19

Þú og peningar= farsælt samband. Þinn veikleiki er hinsvegar að þú átt til að verða of hrifin/n af því kyni sem þú hneigist til. Athugaðu það vandlega

20

Fæðingarblettur á þessum stað getur annaðhvort táknað mikla lukku eða mikla óheppni. Þú verður annaðhvort frægur einstaklingur eða….ekki. Þú átt til að vera afskaplega greindur einstaklingur og hefur mikla sköpunargáfu. Það er samt tvíbent sverð – hæfileikar þínar geta bæði verið notaðir til góðs og ills.

Þú verður að passa upp á að fólk vaði ekki yfir þig. Hvernig vilt þú að fólk minnist þín?

21

Virkilega góður staður fyrir fæðingarblett! Þú munt alltaf eiga nóg að borða og drekka í gegnum lífið. Þú ert eftirtektarverður persónuleiki og munt alltaf verða hrókur alls fagnaðar

22

Líf þitt er hamingjuríkt og hlutirnir ganga einhvernveginn alltaf upp hjá þér. Ef þú hefur áhuga á íþróttum mun það verða mikið gæfuspor. Fæðingarblettir við enda augabrúna þýða líka að þú getur vel stjórnað fyrirtæki með góðum árangri.

23

Þú ert afar greindur einstaklingur og kannt þig bæði í félagslífi sem og á „götunni”. Þú kannt að lifa af og verður eflaust afar langlíf/ur. Fjölskyldan og vinir munu aldrei snúa við þig baki…

24

Þú munt öðlast frægð ung/ur og líf þitt mun verða fullt hamingju og þú hefur góð áhrif á alla í kringum þig.

25

Þú verður heppin/n í lífinu en passaðu þig á að gera ekki of mikið. Haldir þú þig við einföldu hlutina í lífinu mun lífið leika við þig

Uppruni lesturs fæðingarbletta: Á 16. öld varð vinsælt að lesa í fæðingarbletti í andlitinu. Var talið að líkaminn þekki sig sjálfan og aðra betur en það sem liggur í augum uppi. Í fortíðinni hélt fólk að fæðingardagar- og blettir hefðu mikið um að segja hvað varðaði persónuleika og áhrif stjarnanna á okkar líf. Tunglið hefur mikil áhrif á jörðina – af hverju ekki á mannverur líka?

 

Heimild: naturalnutritionguide.com

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!