KVENNABLAÐIÐ

Heimilið hennar ilmar alltaf dásamlega! Uppskrift að leyndarmálinu

Fólk eyðir oft fúlgum fjár í alls kyns ilmefni fyrir heimilið, svo sem ilmkerti og sprey. Hinsvegar er eitt afar gott ráð sem við ætlum að gefa þér og það kostar ekki hálfan handlegg! Þessi ilmgjafi er náttúrulegur og þú veist nákvæmlega hverju þú ert að anda að þér…sem þú gerir ekki með keyptum ilmspreyjum.

hus ilmur

Hér er þessi einfalda uppskrift:

Ilmolía að eigin vali, 10 dropar (fæst í náttúrubúðum og sumum apótekum)

Hreinn spreybrúsi

Ein matskeið matarsódi

500 ml soðið vatn.

 

Blandaðu innihaldsefnunum saman og settu í flöskuna. Spreyjaðu og njóttu ilmsins. Þetta bæði hreinsar loftið og heimilið ilmar dásamlega. Ótrúlega einfalt og áhrifaríkt! Ekki gleyma að deila til vina þinna…

 

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!