KVENNABLAÐIÐ

Ástæður þess að þú átt aldrei að eltast við HANN

Ókei, þú ert skotin í strák. Það er alltaf gaman…fiðrildin í maganum, eina stundina heldurðu að allt sé búið og svo kemur sms og allt er á fullu – aftur. Þú „plottar” og spilar með (því allir kunna leikinn) og þú vilt vera betri í leiknum en hann.

Þú sveiflast á milli þess að hata og elska leikinn. Þú þykist og lest allt of mikið í hlutina. Bókstarflega. Punktar og kommur skipta máli. Tíminn sem líður milli skilaboða. Allt og ekkert hefur merkingu.

 

text

 

Hér koma góð ráð til þín – og af hverju þú ættir aldrei að eltast við hann:

Ef þú eltist við einhvern sem er ekki að eltast við hann ertu ekki að gera neitt nema að skapa óróa í brjóstinu. Þegar þú hittir þann eina rétta (eða þessa einu réttu) viljið þið bæði hið sama. Annars ertu að eyða tíma í að „plotta” hvernig þú getur gert hann ástfanginn af þér.

Þú ferð að gleyma fólkinu í kringum þig. Þú tapar dýrmætum tíma sem þú gætir nýtt í að hlæja með vinunum eða fara með mömmu í Kringluna.

Ef þú býður hjarta þitt einhverjum sem á þig ekki skilið ertu ekki að koma vel við sjálfa þig. Þessi eini sanni myndi gera hvað sem er til að vera með þér og koma fram við þig eins og drottninguna sem þú ert.

Þú ferð að gleyma hlutum sem eru og voru þér mikilvægir. Þú vonaðist eftir einhverju betra en þú ert farin að sætta þig við símtöl klukkan tvö eftir miðnættu.

Þú ert að gera sjálfa þig brjálaða. Þú glápir á símann þinn sem er bæði þinn besti vinur og versti óvinur. Þú heldur að þú sért að „leika leikinn” en það er verið að spila með hjartað þitt.

Þú ert að eltast við manneskju í stað þess að láta lífið gerast. Hættu að spá í hver einustu skilaboð og leyfðu hlutunum að hafa sinn gang. Láttu hið raunverulega augnablik renna upp ef það á að gera það…annars ertu bara að eyða tíma í vitleysu.

Að vera skotin er ótrúlega gaman en getur einnig verið hreinlega niðurdrepandi. Í hvert skipti sem þú heyrir í símanum þínum hleypurðu til og óskar þess að það sé hann. Vonbrigðin eða gleðin sem sveiflar þér til og frá er hreinlega ekki góð fyrir þig.

Þú veist að það er best að senda ekki tvö sms í einu. En svo gerir þú það samt og „tapar völdunum” svo að segja. Svo færðu ekkert svar og líður helmingi verr á eftir.

 

Staðreyndin er sú að þú átt ekki að eltast við neinn. Þú þarft ekki að leika leiki til að verða ástfangin. Farðu að elta draumana þína í staðinn!

Heimild: YourTango

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!