KVENNABLAÐIÐ

Eva Mendes og Ryan Gosling eignast dóttur

Meðgöngu seinni dóttur þeirra var haldið leyndri: Þremur vikum eftir að fréttist að Eva Mendes væri með barni fæðist dóttir þeirra leikarapars, Amanda Lee Gosling. Fæddist hún þann 29. apríl síðastliðinn í Santa Monica í Kaliforníu.

Á leið frá spítalanum
Á leið frá spítalanum

 

Dóttir þeirra Esmeralda verður tveggja ára þann 12. september. Sást hin 42 ára leikkona fara af sjúkrahúsinu í gær. Var Gosling einmitt nokkrum klukkutímum fyrir fæðinguna í þætti Jimmy Kimmel.

Ryan Gosling, Eva Mendes and Anthony Pizza in The Place Beyond the Pines

Parið með dóttur sinni, Esmeröldu

Mendes sagði í viðtali: „Ég hef aldrei verið jafn þakklát fyrir fjölskylduna mína, au hafa verið alveg æðisleg. Ég er ekki beint með barnfóstru en ég er með hjálp. Ég vil hafa það á hreinu. Ég er ekki á móti barnfóstrum, sem foreldri gerir þú það sem þú þarft að gera en ég er bara mjög þakklát fyrir alla í kringum okkur, bæði mína fjölskyldu og fjölskyldu Ryans.”

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!