KVENNABLAÐIÐ

Linda P. ætlar ekki í forsetaframboð

Linda Pétursdóttir fegurðardrotting er ein af fjölmörgum sem hafa verið orðaðir við forsetaframboð. Hún gaf út yfirlýsingu á linda.is fyrir skömmu:

 

Síðastliðnar vikur og mánuði hef ég fundið fyrir stuðningi, hvatningu og velvild í minn garð varðandi að gefa kost á mér í embætti forseta Íslands.  Íslenskir og alþjóðlegir fjölmiðlar hafa mikið haft samband við mig vegna þessa og sýnt ákvörðun minni áhuga.

Það hefur gefið mér mikið að eiga samtöl við fjölskyldu, vini og vandamenn og ég ákvað að gefa þessu góðan tíma, velta málum fyrir mér og taka ákvörðun í framhaldi en hét sjálfri mér jafnframt því að svarið yrði að koma frá hjartanu.

 

Mín niðurstaða er sú að þrátt fyrir að vera alvön í erlendum samskiptum og þekkja bæði til búsetu í borg og bæ þá tel ég mig enn eiga ýmislegt eftir ólært til að geta orðið góður forseti.  Ég tel mjög mikilvægt að þekkja betur til stjórnskipan og stjórnsýslu landsins.  Því er ákvörðun mín nú sú að rétti tíminn sé ekki kominn fyrir mig og ætla ég því ekki að bjóða mig fram í embættið núna.

Mynd: linda.is

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!