KVENNABLAÐIÐ

Hver er Baddie Winkle?

Jú, hún er svalasta 87 ára kona sem þú átt nokkurn tíma eftir að sjá: Baddie skaust upp á stjörnuhimininn á netinu og er fyrir löngu orðin þekkt fyrir sinn dásamlega persónuleika og fyrir að vera “most badass grandma in the world.” (engin góð leið til að þýða það á íslensku!)

Hún er fædd Helen Ruth Van Winkle í Kentucky í Bandaríkjunum árið 1928. Baddie er ófeimin við að klæða sig í hvaðeina sem henni dettur í hug – oftast í litríkum og skemmtilegum fötum. Einnig er hún hlynnt lögleiðingu kannabisefna í lækningaskyni. Hún er ófeimin við að segja brandara sem gætu talist frekar yfir strikið en henni er fyrirgefið það þar sem hún hefur þvílíka útgeislun.

Baddie hefur milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlunum enda mikil skemmtun að fylgjast með henni!

Baddie fann fyrst frægðina þegar hún fékk barnabarnabarnið sitt til að setja af henni mynd á Twitter þar sem Baddie var í fötum af henni. Frá því að poppdrottningin Rihanna fór að fylgja henni fylgdi allur heimurinn í kjölfarið.

Aldur er bara tala, ekki satt?

 

Með Khloe Kardashian
Með Khloe Kardashian

 

baddie

 

Með "Piper" úr OITNB
Með „Piper“ úr OITNB

bad9

 

bad8

 

bad7

 

Á Grammys um daginn
Á Grammys um daginn

bad4

 

bad3

 

bad2

 

Ekki má gleyma upplýsingunum um hana á Facebook (smelltu á myndina til að komast á síðuna og ekki gleyma að læka!)
Ekki má gleyma upplýsingunum um hana á Facebook (smelltu á myndina til að komast á síðuna og ekki gleyma að læka!)

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!