KVENNABLAÐIÐ

Hvernig baksturinn bjargaði mér frá átröskun: Geri, fyrrum Spice Girls meðlimur, segir frá

Margir muna eftir Geri Halliwell,„Ginger Spice” í stúlknabandinu Spice Girls. Færri vita að hún hefur þjáðst af átröskun, búlimíu eða lotugræðgi í mörg ár.

Geri eins og hún lítur út í dag
Geri eins og hún lítur út í dag

Geri (nú Geri Horner eftir að hún gifti sig) vill koma boðskap sínum á framfæri og segir að hún hafi lært að baka og„fagna kökunni” eins og hún orðar það. Hún segir að baksturinn hafi að lokum frelsað hana frá fíkninni.

 

geri4

 

Bake Off er gríðarlega vinsæll þáttur í Bretlandi þar sem nýgræðingar í bakstri keppa við aðra. Nýjasta serían og sú fimmta var nýlega færð frá BBC 2 yfir á BBC 1 vegna ótrúlegra vinsælda. Hefur keppnin vakið áhuga Breta svo um munar á bakstri og er hann í „tísku“ þar sem aldrei fyrr. Geri var kosin„star baker” í síðastliðnum mánuði. Einnig er hún með fjölda fylgjenda á Instagram þar sem hún bakar og bakar!

 

Í maímánuði í fyrra giftist Geri Cristian Horner sem leiðir Infiniti Red Bull Formula One liðið í kappakstri. Hún á fyrir dótturina Bluebell sem er níu ára gömul og hefur verið einstæð móðir í mörg ár. Það er mikil breyting að fara úr því í hjónaband en hún fagnar því:„Meirihluta ævinnar hef ég verið einstæð. Ég hef alltaf hugsað um mig sjálf, borgað mína reikninga og alið upp barn ein. Ég elska að vera skapandi en að halda heimili og vera móðir skiptir jafn miklu máli.”

 

Spice Girls með Prince Charles á sínum tíma (allar myndir/texti DailyMail)
Spice Girls með Prince Charles á sínum tíma
(allar myndir/texti DailyMail)

 

 

Baksturinn breytti lífi Geri

 

Í fyrsta skipti sem Geri kom fram í Bake Off var það að ósk dóttur hennar sem elskar þættina. Geri hafði samt ekki eldað neitt nema pizzu þegar hún var 11 ára.„Ég hugsaði, hvað er ég búin að koma mér út í? Ég á eftir að verða að athlægi!” En henni til mikillar furðu fór þáttastjórnandinn að borða kökuna…og svo allir í tökuverinu.„Þetta kenndi mér að það er gott að segja JÁ og fara út fyrir þægindarammann.”

 

Geri á Spice Girls tímabilinu
Geri á Spice Girls tímabilinu

 

„Baksturinn er frelsandi fyrir mig,” segir Geri.„Milli tvítugs og þrítugs var ég illa haldin af átröskun. Þrátt fyrir að hafa náð bata að einhverju leyti var samband mitt við mat alltaf óheilbrigt. Ég þráði samt ekkert heitar en að vera gott fordæmi fyrir dóttur mína svo ég reyndi að halda þessu í jafnvægi. En að baka almennilega og„fagna kökunni” eins og ég kalla það í stað þess að hlaupa frá henni var ofboðslega mikilvægt fyrir mér. Að baka, þessi sköpun, breytir öllu fyrir mig. Það er fyrir mér eins og að semja lag, breytir öllu,” segir Geri að lokum.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!