KVENNABLAÐIÐ

„Klámfíknin var að eyðileggja líf mitt“

Brooklyn Nine-Nine leikarinn Terry Crews hefur opnað á „litla, ljóta leyndarmálið sitt“ í myndböndum sem hann póstar á YouTube. Með því vill hann hjálpa fólki í sömu stöðu.

Fyrrum NFL leikmaðurinn fór í meðferð vegna fíknarinnar sem heltók hann og var næstum búin að enda hjónaband hans. „Sumir segja „hey, maður….þú getur ekkert verið háður því að horfa á klám.“ En ég get sagt við ykkur: Ef dagur verður að nóttu og þú ert enn að horfa á klám áttu sennilega við vandamál að stríða. Og þannig var ég,“ segir hann.

Segir Terry að fíknin breyti viðhorfinu til annars fólks: „Fólk verður að hlutum. Líkamspörtum. Það verður að hlutum sem maður getur notað en ekki að manneskjum sem maður getur elskað.“

Leyndarmálið

Segir leikarinn að hann hafi haldið klámnotkun sinni frá öllum, einnig eiginkonu sinni, söngkonunni Rebecca King Crews.  Þau hafa verið gift frá 1990 og eiga fimm börn saman.

„Fíknin litaði allt. Konan mín sagði: „Ég þekki þig ekki lengur, ég er farin,““ segir Terry. „Ég varð að breytast.“ Hefur hann nú ekki horft á klám í sex eða sjö ár og hann þurfti meðferð til að komast út úr vítahringnum.

Myndböndin sem eru á síðu hans á Facebook hafa verið skoðuð 3 milljón sinnum og hafa fengið 10.000 athugasemdir. Málefnið er þarft og brýnt og margir í sömu stöðu. Einn maður sagði: „Takk fyrir þessi skilaboð Terry, hreinskilni þín er aðdáunarverð. Ég reyki ekki, drekk ekki, nota ekki eiturlyf. En ég hef glímt við klámfíkn í mörg ár. ÁR. Ég er þakklátur í dag að eiga minn edrúdag og ég er búinn að vera laus við fíknina í einhvern tíma núna. Ég vinn í batanum á hverjum degi og geri allt til að fjarlægja ægivald hennar úr lífi mínu.“

Önnur kona tjáði sig um að „plágan“ hafi eyðilagt hjónabandið hennar. „Ég er ánægð að sjá þig berjast gegn henni. Við þurfum fleiri raddir til að skapa umræðu. Þetta er þögult stríð og fórnarlömbin eru fjölskyldan og samböndin.“

Í hvert skipti sem Terry horfði á klám varð hann sem steinrunninn: „Það drepur alla nánd í sambandi. Það var sem veggur hafi myndast milli mín og konunnar minnar. Og sannleikurinn er sá að allt sem þú þarft til að vera náin er makinn sjálfur.“

tc old

 

Rebecca King Crews hefur ekki tjáð sig um málið opinberlega en það virðist vera gott milli þeirra því í síðustu viku póstaði hún mynd á Instagram af henni og honum og við hana stóð: „Love my boo!“

Terry Crews er 47 ára gamall og lék í NFL deildinni í sex ár áður en hann byrjaði að leika. Hann hefur leikið í ótal myndum, s.s. White Chicks, Bridesmaids, The Expendables og fleirum. Hann sló einnig eftirminnilega í gegn í seríu auglýsinga fyrir Old Spice og leikur nú í Brooklyn Nine-Nine.

Heimild: CNN

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!