KVENNABLAÐIÐ

Draumahúðflúrið breyttist í martröð: Myndir

Það fylgir því mikil ábyrgð að vera húðflúrari. Það fékk hinn 29 ára gamli Didier Jacquemin að reyna, svo sannarlega. Hann sá loksins draumahúðflúrið á netinu – falleg mynd af skógi með fuglum fljúgandi í bakgrunni. Hann prentaði myndina út og fór með á tattoostofu.

 

Óskamyndin er til vinstri eins og glöggir lesendur taka eftir
Óskamyndin er til vinstri eins og glöggir lesendur taka eftir

tats2

 

Húðflúrmeistarinn samþykkti myndina en útkoman var því miður ekki eins og hann óskaði sér: Útkoman var eins og leikskólabarn hefði teiknað á hann: „Ég vildi fallega mynd af fuglum á flugi í skógi. Í staðinn fékk ég nokkra máva og dautt tré!“ Hann segist hafa borið of mikið traust til húðflúrarans: „Hún notaði ekki myndina til að undirbúa sig en ég hugsaði ekki út í það því hún hafði sett tattoo á vin minn og það heppnaðist vel. Þannig ég hafði ekki minnstu áhyggjur.“

 

tattoo

 

Þegar hún gerði uppkast að myndinni á framhandlegg Didier sagði hann við hana að þetta væri ekki eins og hann hefði óskað sér. Hún sagði að þetta væri eðlilegt, greinarnar myndu „lifna við“ í ferlinu. Þegar á leið varð Didier smám saman ljóst að draumahúðflúrið var að breytast í martröð.

Nú þarf Didier að vera með óafmáanlegt húðflúr af dauðu tréi á framhandleggnum. Það er kannski óþarfi að taka það fram að hann hefur þurft að þola mikla stríðni frá fólkinu í kringum hann: „Meira að segja mamma er búin að gera grín að mér. Hún sagði að ég ætti að bera einhvern áburð á tréið því það liti hræðilega illa út,“ segir hann.

Hann gekk að sjálfsögðu á listamanninn en hún sagðist ekki hafa haft nægilegan tíma til að gera nákvæma eftirmynd. Svo gaf hún sig að lokum og greiddi honum það sem hann hafði borgað, til baka.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!