KVENNABLAÐIÐ

Ég átti svartan hund, nafn hans var þunglyndi

Þunglyndi er talið henda einn af hverjum fimm einstaklingum einhverntíma á lífsleiðinni. Á Íslandi er talið að 12-15.000 einstaklingar þjáist af þunglyndi á hverjum tíma. Afleiðingar þess geta verið skelfilegar. Allt frá félagslegri einangrun til sjálfsvíga.

Ekki er vitað til fulls um orsakir þunglyndis en kenningar eru um efnaójafnvægi í heila en einnig getur það tengst áföllum (t.d í æsku), sorg, streitu, fæðuóþoli eða hreinlega óhollu mataræði, hreyfingaleysi og áfengisneyslu þá fátt eitt sé nefnt.

Winston Churchill fyrrum forsætisráðherra Breta á tímum seinni heimstyrjaldarinnar þjáðist af þunglyndi og lýsti því sem svörtum hundi. Rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn Matthew Johnstone skrifaði bók árið 2005 sem bar titilinn: I had a Black Dog, it Name was Depression.

Í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina var gefið út myndband nokkrum árum síðar sem ber sama nafn. Í þessu flotta og hnitmiðaða myndbandi er fjallað um einstakling sem hefur svartan hund í lífi sínu og hvernig hann missir smám saman tökin eftir því sem hundurinn eflist.

Það var síðan ekki fyrr en hann viðurkenndi vandann fyrir sjálfum sér og ástvinum að hann tók skrefið og leitaði til sálfræðings, fór síðan að stunda líkamsrækt og hugleiðslu og náði þannig góðum bata.
Kjörorð myndbandsins að mínu mati er, það er alveg sama hversu slæmt ástandið verður og hve langt niður þú ert kominn andlega, dagar svarta hundsins munu líða hjá, séu tekið rétt skref í átt til bættrar heilsu.

Ég hvet alla til að horfa á myndbandið hér að neðan og líta í hjartastað hvort svartur hundur sé að sniglast þar í kring og nota aðferðirnar sem listaðar eru til að fæla hundinn burt.

 

Gangi ykkur vel!
– Víðir Þór
Íþrótta- og heilsufræðingur

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!