KVENNABLAÐIÐ

NÝTT – Beyoncé ft. Chris Martin: Hymn for the Weekend

Gullfallegt myndband úr smiðju hljómsveitarinnar Coldplay leit dagsins ljós síðla í gær, en myndbandið var tekið upp í indversku borginni Mumbai og bregður sjálfri Beyoncé fyrir í gervi Bollywood leikkonu.

Litadýrðin er ærandi og myndatakan varpar ævintýrakenndum ljóma á indversku borgina, en um er að ræða myndband við nýútkomna smáskífu; Hymn for the Weekend. Í myndbandinu má meðal annars sjá Chris Martin þræða þröng stræti Mumbai meðan innfædd börn kasta púðurlitum á söngvarann geðþekka, en Beyoncé, sem slóst í för með hljómsveitinni er flúruð að indverskum sið, íklædd hátíðarklæðum og umvafin litríkum rósum.

Smáskífan sjálf er hluti af nýútkominni breiðskífu Coldplay sem ber heitið A Head Full of Dreams, en þeir gestasöngvarar sem ljá útgáfunni lið eru (augljóslega) engin önnur en Beyoncé og svo barnung dóttir þeirra Jay Z, sjálf Blue Ivy.

Beyoncé mun troða upp ásamt Coldplay í hálfleik Ofurskálarinnar sem sjónvarpað verður þann 7. Febrúar næstkomandi frá Levi´s leikvanginum sem staðsettur er í Santa Clara í Kaliforníu og verður í meira lagi forvitnilegt að fylgjast með flutningnum.

Hér má hins vegar sjá ávöxt ævintýralegs samstarfs þeirra Beyoncé og Chris Martin eins og það birtist í nýútkomnu myndbandi við smáskífuna Hymn for the Weekend:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!