KVENNABLAÐIÐ

Rótsterkur og mexíkanskur hrá-súkkulaðidrykkur með rauðum pipar sem rífur burt kvefið

Ilmandi heitt súkkulaði með möndlumjólk, krydduðum kanel og hressandi múskat, rífandi rauðum pipar og gneistandi grænum spínatlaufum hlýtur að vera kirsuberið á kökunni í annars hryssingslegu skammdeginu.

raw cacao


Það er ekki að ástæðulausu að þessi ljúffengi og íðilgræni súkkulaðidrykkur er sagður flensuscreenshot-simplegreensmoothies.com 2015-11-24 08-10-46bani, en tilvalið er að nota hrákakóduft í blönduna til að gera drykkinn, sem bera má fram volgan eða kaldan – allt eftir hentuguleika. Í það minnsta eru hér andoxunarefni, vítamín, steinefni og almenn orkusprengja á ferð! Mmmm!

36399713-single-red-chili-pepper-with-powder-ground-pepper-isolated-on-white-background

I N N I H A L D S E F N I:

1 bolli spínatlauf

1 bolli möndlumjólk (ósæt) – upphituð

1 banani

1 msk möndlusmjör

1 msk hrá-súkkulaðiduft

½ tsk malaður kanell

Hnífsoddur af múskat

Hnífsoddur af möluðum, rauðum pipar

Hnífsoddur af salti

nutmeg

F R A M R E I Ð S L A:

Hrærið saman spínatlaufunum og volgri möndlumjólkinni, þar til blandan er orðin áferðarfalleg og mjúk. Bætið nú banananum, möndlusmjörinu, kakódufti, kanel, múskat, rauðum pipar og salti út í blönduna og hrærið saman aftur.

almonds

BERIÐ STRAX FRAM!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!