KVENNABLAÐIÐ

Fastar fléttur, fjólubláir hanakambar og uppsett hár – Litrík herratíska í vor!

Fastar fléttur, uppsett hár og fjólubláir hanakambar. Þetta og meira til má reikna með að verði ríkjandi í herratískunni þegar líða tekur að vori en svipmyndir af komandi hártrendi eru þegar farnar að flögra á netinu.

Það er rétt; ekki er verið að vísa til dömutískunnar eins og ætla mætti – heldur verða það herrarnir sem flétta hár sitt í vor og sumar og það með glettilega fallegum árangri. Óvenjulegt verður að segjast að vísa í fastar fléttur þegar herrarnir eru annars vegar, en fallegt er það eins og sjá má hér:

Þá verður hanakamburinn áberandi í vor meðal strákanna; í það minnsta rakað í hliðum og uppgreitt hár – föst flétta, hliðarflétta og jafnvel margar litlar fléttur. Sjálfur Bieber reið á vaðið sl. föstudag eins og SYKUR greindi frá og brá sér inn á hárgreiðslustofu í Beverly Hills, þar sem goðið eyddi dágóðum tíma og gekk stúlknatryllirinn út með fjólubláar strípur sem hann svo frumsýndi á Instagram við gífurlegar undirtektir aðdáenda sinna:

Bieber gerir allt brjálað – Brá sér inn á hárgreiðslustofu og kom gjörbreyttur út!

 Hægt er að fylgjast með trendinu á Instagram, undir kennimerkinu #manbraid sem sýnir fjölbreytilegar útfærslur af mannafléttunni svonefndu – þar sem alflestir státa af rökuðum hliðum og uppsettu topphári.

Örfáir og ævintýragjarnir ganga skrefi lengra og státa af fjölmörgum, smærri fléttum og hnýta þá gjarna hárið í tagl eða hnút. Þá eru þeir óupptaldir sem lita jafnvel hárið í takt við Bieber og laða þannig fram enn ævintýralegra lúkk: 

Skemmtilegt nokk, en hér má skoða úrval og sækja innblástur – smellið á tengilinn að neðan!  

#manbraid

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!