KVENNABLAÐIÐ

C-vítamín og 8 kostir þess – frá hári og niður að tám

Yfirleitt þegar hugsað er um C-vítamín þá er það í tengslum við ónæmiskerfið og flensur ásamt kvefi. En C-vítamín er alveg meiriháttar fyrir t.d húð,hár og neglur og svo margt annað.

Kíktu!

Við könnumst allar við að eyða fúlgum í alls kyns snyrtivörur sem eiga að hægja á öldrun og laga hrukkur og ég veit ekki hvað og hvað.

En það eina sem við í raun þurfum, er að passa upp á C-vítamín birgðir líkmans. C-vítamín er vatnsleysanlegt vítamín og þarf því að innbyrða það daglega, hvort sem er úr mat og eða í töfluformi.

Ber eru sérstaklega rík af C-vítamíni, t.d kirsuber, goji, jarðaber og fleiri.

Mundu bara að þú þarft að fylla daglega á C-vítamín tankinn til að það nýtist þér.

1. Lengri neglur

C-vítamín styrkir neglurnar innan frá með því að aðstoða líkamann við að framleiða kollagen.

2. Ver húðina gegn ótímabærri öldrun

Þar sem C-vítamín er andoxunarefni þá hjálpar það til í baráttunni við hrukkur og þurra húð.

3. Það hjálpar þér að líta vel út og fyllir þig orku

Ef þig skortir járn þá leiðir það til blóðleysis sem svo orsakar þreytu og veikleika. C-vítamín aðstoðar líkamann við að vinna járn úr matnum sem þú borðar og eykur þannig orku líkamans.

4. C-vítamín ver húðina gegn sólarskemmdum

C-vítamín ver húðina ekki bara gegn UV skemmdum, heldur virkar það einnig sem mild sólarvörn. Það getur einnig hjálpað húðinni að vinna á skemmdum sem þegar hafa orðið vegna sólarinnar … lesa meira

heilsutorg

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!