KVENNABLAÐIÐ

Tina Lawson (62) fagnar afmælisdeginum með Beyoncé og er komin á Instagram

Tina Lawson, (áður Tina Knowles) er komin á Instagram. Ekki allir þekkja nafnið, en móðir Beyoncé lætur sér fátt um finnast. Þessi glæsilega kona fagnar 62 ára afmæli sínu í dag og loks er hægt að fylgja móður einnar farsælustu poppstjörnu samtímans eftir á netinu.

Ekki margir vita að Tina er náin vinkona Kris Jenner, móður Kim Kardashian og að hún gekk í hjónaband að nýju fyrir skömmu síðan, eftir að hafa skrifað undir skilnaðarpappírana í kjölfar þess að upp komst um svívirðilegt framhjáhald Matthew Knowles, föður Beyoncé og Solange.

Allur réttur áskilinn: mstinalawson@instagram
Allur réttur áskilinn: mstinalawson@instagram

Viltu gægjat að tjaldabaki og sjá hvernig móðir Beyoncé og Solange eyðir deginum? Hvað gerir amma Blue Ivy í sumarleyfinu? Getur verið að konur sem náð hafa sextugu búi enn yfir kynþokka? Hvernig er að skilja á miðjum aldri fyrir allra augum og rata í heimspressuna sökum hjúskaparstöðu eftir ríflega þriggja áratuga hjónaband?

Allur réttur áskilinn – mstinalawson@instagram

Þessu og fleira greinir afmælisbarn dagsins frá í magnaðri þakkarræðu sem hún flutti við dynjandi lófatak á hádegisfundi Women & Money, sem fram fór í Houston ekki alls fyrir löngu. Tina greindi meðal annars frá því hvernig hún hóf ferilinn sem hárgreiðslukona og hannaði sviðsbúninga Destiny’s Child. En það var þó ekki allt, því Tina sagðist hafa fetað sig skelfingu lostin á frumskógi stefnumótamiðla, þá orðin 59 ára gömul og að hún hefði ekki gert sér miklar vonir um að finna sálufélaga sinn eftir hatramman skilnaðinn við föður Beyoncé.

Ég var skíthrædd við tilhugsunina eina; að fara á stefnumót aftur. Ég sagði öllum vinum mínum að ég ætti aldrei eftir að finna karlmann og að það væri útilokað fyrir mig að verða ástfangin á þessum aldri. Hvar átti ég eiginlega að hitta menn? Hvar átti ég að finna þá?

Á Instagram reikning Tinu má hins vegar sjá ástina skína úr augum hennar og hjartaknúsarans Richard Lawson, sem er örfáum árum eldri en Tina og gekk með grasið í skónnum á eftir glæsikonunni sem hefur staðið eins og klettur við bak sjálfrar Beyoncé og hvatt dóttur sína áfram í bransanum sem færði fjölskyldunni verðskuldaða heimsfrægð.

Allur réttur áskilinn: mstinalawson@instagram
Allur réttur áskilinn: mstinalawson@instagram

Fylgja má Tinu eftir á Instagram með því að smella HÉR en þakkarræða móður sjálfrar Beyoncé, sem fór stórum á netinu fyrir tæpum tveimur árum síðan, hefur mikinn sannleika að geyma. Hlýða má á sjálfa Tinu, sem þá bar eftirnafnið Knowles, hér að neðan – orðin 62 ára gömul og glæsilegri en nokkru sinni fyrr:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!