KVENNABLAÐIÐ

Hvaða dyr velur þú? Valið segir ótrúlega margt um þig!

Hvaða dyr af þessum sex myndir þú velja? Val þitt getur sagt ýmislegt um framtíðina – hverjar vonir þínar og væntingar kunna að vera og hvernig þú lifir lífinu.

Veldu dyrnar með því að horfa á myndirnar hér að neðan. Ekki taka of langan tíma og heldur ekki of stuttan. Veldu þá mynd sem mest höfðar til þín af einhverjum ástæðum.

hurð in

 

Hér getur þú séð niðurstöðurnar!

h1

Dyr númer 1:

Þú átt til að standa stundum í „ströggli“ við þá sem eru í kringum þig hvað varðar þitt persónulega frelsi. Þú vilt hafa mikinn tíma út af fyrir þig og ferð þínar eigin leiðir….sérstaklega ef möguleikarnir eru margir. Þú þolir ekki þegar fólk ýtir á þig og vilt stjórna þínum tíma sjálf/sjálfur.

h2

 

Dyr númer 2:

Þú velur þér frekar þröngan en breiðan veg í lífinu. Þú vilt helst ferðast upp á eigin spýtur og kýst einveru oftast nær. Persónueinkenni þín eru falleg – þú ert frumlegur persónuleiki, skapandi, jafnvel heimspekilegur og þú hefur gott innsæi. Sýn þín á heiminn er mjög sérstök.

h3

 

Dyr númer 3:

Framtíð þín er afskaplega litrík. Þú ert manneskja sem allir vilja kynnast og umgangast. Þú vilt mjög taka þátt í sem flestu og upplifa margt. Þú horfir á lífið sem ferðalag en ekki áfangastað. Þú átt til að vera forvitin/n og vílar ekkert fyrir þér að setjast að á nýjum stöðum. Er fólk oftast kátt í kringum þig? Það er af  því þú ert hrókur alls fagnaðar og segir oftast réttu hlutina!

 

h4

 

Dyr númer 4:

Þú kýst að fara í gegnum lífið hratt – mætti kannski kalla þig adrenalínfíkil! Þér finnst spenanndi þegar allt er á fullu og stundum næristu á spennunni sem fylgir því að vera í óvæntum aðstæðum. Þú heillast af hinu óþekkta og átt til að gefa skít í reglur, boð og bönn. Þú ert þessi manneskja sem þorir í rússíbanann þegar hinir þora ekki.

 

h5

 

Dyr númer 5:

Þú ert afskaplega hlý og góð persóna. Þú velur alltaf friðsamlegu leiðina og hefur þig ekki mikið í frammi. Þú vilt hafa allt á hreinu á vegferð þinni um lífið. Kannski áttu til að taka „auðveldu leiðina út“ og vilt ekki erfiða um of. Það er allt í lagi – fólkið þitt kann að meta hversu jarðtengd/ur þú ert.

Valdir þú hurð númer 1? Hér sérðu hvað það þýðir...

 

Dyr númer 6:

Þú ert einfari. Þú ert oft ein/n og nýtur þess – verður aldrei einmana. Þú ert athugull áhorfandi að öllu sem fram fer í kringum þig og tekur inn upplýsingarnar en þær hafa ekki slæm áhrif á þig. Þú kýst frjálslegt líf – værirðu uppi á hippatímanum hefðir þú sjálfsagt kosið frjálsar ástir! Þú vilt að sambönd þín við annað fólk séu raunveruleg því þú þolir ekki falskt fólk eða fólk sem kemur ekki hreint fram.

Áttu niðurstöðurnar við þig? Láttu okkur vita hér að neðan og ekki gleyma að deila á Facebook til að bera niðurstöðurnar saman við vini og fjölskyldu!

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!