KVENNABLAÐIÐ

Sjáðu Taylor Swift og Lisu Kudrow spila SMELLY CAT fyrir troðfullum sal

Þetta er of gott til að vera satt! Taylor Swift er augljóslega FRIENDS aðdáandi og ekki nóg með það, Lisa Kudrow sem fór með hlutverk Phoebe Buffay í þáttunum er hennar uppáhalds leikkona.

Þetta afhjúpaði Taylor á sviði þegar hún hélt tónleika í Los Angeles nú í vikunni, en hún kallaði upp Lisu upp á svið, kynnti hana inn sem Phoebe og sagði að listakonan með gítarinn hefði reyndar einungis troðið upp á kaffihúsum fram að þessu.

Því næst slógu þær á létta strengi (í bókstaflegri merkingu) og tóku Smelly Cat dúett á sviði fyrir troðfullu húsi. Þetta er alltof fyndið og enginn Swift (né Friends) aðdáandi ætti að láta þetta framhjá sér fara.

Hér má sjá Swift og Kudrow taka Smelly Cat á sviði fyrir troðfullum sal:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!