KVENNABLAÐIÐ

SOPHIE WEBSTER: Svimandi háir PINNAHÆLAR BARBIE fáanlegir í FULLRI STÆRÐ

Svarið við bænum allra Barbie aðdáenda er komið; draumkennd kapsúlulína sjálfrar Sophiu Webster sem hún kynnti fyrir fáeinum dögum og hefur sett á markað í samvinnu við leikfangarisann MATTEL.

Línan inniheldur sex pör af skóm sem allir minna á eina frægustu dúkku allra tíma en hér sýnir Sophia svo um munar að hún stendur sjálfum Jeremy Scott, sem er stýrir hátískuhúsi Moschino, fyllilega á sporði í frumlegri hátískuhönnun sem endurspeglar súrrealískan poppkúltúr nútímans.

1440272852-barbie-sophia-webster-chiara-500

 

Innblásturinn sótti Sophia rakleiðis í skóskáp sjálfrar Barbie en meðal þess sem kapsúlulínan inniheldur eru pinnahælar, sandalar, strigaskór og ballerínuskór. Í viðtali við Footwear News sagðist Sophia að hér hefði langþráður draumur loks orðið að veruleika:

„Mig hefur alltaf dreymt um að hanna skófatnað fyrir Barbie, en ég lít á það afrek að fá Barbie loks til að klæðast ballerínuskóm og flatbotna sandölum sem einstakt, persónulegt afrek sem ég er ósegjanlega stolt af. Línan er á mörkum draums og veruleika og það gerir hana enn fallegri.“  

gallery-1440273201-barbie-by-sw-leah-2-vogue-19aug15-pr-b

Glaðlyndislegir pinnahælar sjálfrar Barbie í fullri stærð eru nú fáanlegir í verslunum Selfridges í London og Manchester, Pedder í Hong Kong, Shanghai, Jakarta og Bejing, ásamt Level Shoe District í Dubai og að endingu gegnm vefsíðu Selfridges og vefverslun Sophiu Webster.

Hér má sjá Barbie línu Sophie Webster: 

sophia-webster-barbie-shoes-5 1440273351-barbie-sophia-webster-adele-170 1440273250-barbie-sophia-webster-speechbubble-335 1440273122-sophia-webster-barbie-sneakers 1440273477-barbie-sophia-webster-tyra-449

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!