KVENNABLAÐIÐ

GRENNANDI og AFEITRANDI kraftaverkate sem örvar FITUBRENNSLU

Þessi kraftaverkadrykkur inniheldur grænt te, lífrænar appelsinur og fersk mintulauf og er tilvalinn ef þú þarft að afeitra líkamann og missa nokkur kíló.

Grænt te kemur jafnvægi á meltinguna, eykur efnaskiptin og örvar fitubrennslu. Einn bolli af grænu tei daglega getur dregið úr líkum á ýmsum sjúkdómum eins og hjartasjúkdómum, liðagigt, sykursýki, kvefi, flensu og fleira.

Appelsínur eru stútfullar af andoxunarefnum og eru mjög næringarríkar. Þær eru alveg lausar við fitusýrur og eru trefjaríkar, sem er nauðsynlegt fyrir þá sem vilja missa nokkur kíló. Margir segja að appelsínur hafi jákvæð áhrif á gigt, hafi fyrirbyggjandi áhrif á krabbamein og æðasjúkdóma.

Myntulaufin eru stútfull af kalki, magnesíum, járni og pótassíum. Mintan á að hjálpa meltingunni að brenna fitu og draga úr uppþembu.

screenshot-www.flickr.com 2015-08-13 10-36-59

U P P S K R I F T: 

Sjóddu heilan líter af vatni upp að suðumarki. Meðan vatnið sýður skaltu þvo tvær góðar appelsínur og skera þær í smábita, án þess að taka hýðið af. Þegar hitastigið á vatninu er komið niður í 80 – 85 gráður, skaltu bæta fimm pokum af grænu tei í vatnið og leyfa þeim að sjóða í 3 – 5 mínútur.

Taktu svo tepokana úr vatninu og helltu tevatninu í stóra vatnskönnu með loki. Bættu appelsínunum og lúkufylli af myntulaufum í vatnið. Lokaðu vel vatnskönnunni og bíddu eftir að teið kólni aðeins. Þegar blandan er farin að kólna aðeins skaltu setja könnuna með lokinu inn í ísskáp. Láttu kólna yfir nótt.

Strax næsta morgun er kraftaverkablandan tilbúin – en þú ættir alltaf að drekka eitt glas af blöndunni ÁÐUR en þú sest niður og borðar máltíð.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!