KVENNABLAÐIÐ

Slúðurmiðlar setja BANN á KARDASHIAN fjölskylduna – Kim bregst við með NEKTARMYND á Instagram

Stríð er yfirvofandi í henni gömlu Hollywood og þar fara raunveruleikastjarnan Kim Kardashian og slúðurmógúllinn Perez Hilton í fararbroddi. Svo mikil heift er komin samskipti þeirra Kim og Perez, að sjálfudrottningin er hætt að elta Perez á Twitter, en þá mun mikið sagt.

Ástæðan? Jú, slúðurpressan er búin að fá sig fullsadda af Kardashian og Jenner fjölskyldunni. Reið Perez á vaðið á Twitter og bjó til taggið #NoKardashiansForAWeek og lýsti því opinberlega yfir að engar Kardashian fréttir yrðu birtar á vefmiðli hans frá 17 til 21 ágúst.

Ekki nóg með það heldur hefur Perez skorað á aðra fjölmiðla að gera slíkt hið sama; hreinsunar sé þörf í slúðurgeiranum og að ekki gangi að Kim prýði hverja forsíðuna af fætur annarri, meðan aðrar stjörnur eru sniðgengnar.

Kim, sem er augljóslega með puttann á púlsinum – var ekki lengi að taka við sér, eyddi Perez samstundis af Twitter og sneri vörn í sókn, tætti sig úr öllum fötum og birti nektarmynd af sjálfri sér á Instagram, en Kim er ólétt af öðru barni þeirra Kanye og er komin með myndarlega meðgöngukúlu.

Reyndar gengur sú saga fjöllunum hærra að Kim hafi birt myndina til að kveða niður ókvittinn orðróm um að þau hjónin hefðu ráðið staðgöngumóður til að ganga með barnið – en fróðir telja að raunveruleikastjarnan sé einfaldlega að þrýsta á heimsmiðla í von um umfjöllun.

11809823_699003720199778_2000413068_n
Kim brást harkalega við áskorun Perez og birti þessa nektarmynd á Instagram

En Perez stendur fastur á sínu, heimsmiðlar eru komnir í málið og þessu deildi m.a. æstur aðdáandi Perez á Twitter, en ókrýndur konungur slúðurfregna hyggst flytja hvetjandi fréttir af afrekum kvenna um víða veröld á næstu dögum gegnum vefsíðu sína – eins og sjá má hér að neðan – og verður spennandi að fylgjast með:


Svo virðist sem fleiri ætli að fylgja fordæmi Perez, en Yahoo News hefur þannig lýst yfir stuðningi við fyrrgreinda ákvörðun og International Business Times tók upp málið til umfjöllunar. Þá er ótalinn vefmiðillinn Mashable og verður forvitnilegt að sjá hvaða áhrif fjölmiðlabannið hefur.

Örfáir dagar eru síðan bandarískur fréttaþulur stóð upp í miðjum flutningi, kastaði frá sér handritinu og sagði samstarfskonu sinni í myndveri að hann væri búinn að fá sig fullsaddan af fregnum frá Kardashian fjölskyldunni. Myndband af atvikinu, sem sló samstarfsfólk hann út af laginu, má sjá hér að neðan og þá er aðeins einni spurningu ósvarað … er síðasta sería Keeping Up With The Kardashians loks runnin upp?

#NoKardashiansForAWeek

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!