KVENNABLAÐIÐ

Fáklædd og tælandi Gigi Hadid í nýjasta smelli Calvin Harris – How Deep Is Your Love

Fáklædd, tælandi og undurfögur Gigi Hadid fer með aðalhlutverkið í nýútkomnu myndbandi við sumarsmell tónlistarmannsins Calvin Harris, sem meðal annars er unnusti Taylor Swift.

Gigi, sem meðal annars er náin vinkona Taylor, ráfar um eigin hugarheima og sést þannig reka upp undrunarsvip á glæsiskútu, dilla sér við danstónlist Calvin á dularfullum næturklúbbi og lagfæra þykkan hármakkann; allt meðan orðin How Deep is Your Love óma undir.

Myndbandið var frumsýnt gegnum TIDAL fyrr í vikunni en er nú komið á YouTube: 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!