KVENNABLAÐIÐ

PUSH-UP: Svona laðar þú fram hina FULLKOMNU brjóstaskoru

Cosmo virðist hafa svör á reiðum höndum við flestum spurningum sem varða fegurð og myndbandið hér að neðan er stórsniðugt, ef taka á mark af því að ófáar konur hugleiða tímafreka og kostnaðarsama brjóstastækkun. Þó ekki væri nema til að líta vel út í kvöldkjól.

Ekki að nokkur manneskja myndi leggja neðangreint á sig hvern einasta dag, en samkvæmt því sem tískuspekúlantar vestanhafs vilja meina; er hægt að gera nær alla brjóstahaldara að geggjuðum Push-Up með örlitlum tilfæringum.

Allt sem til þarf (samkvæmt biblíu Cosmo) er brjóstahaldaraklemma, silicon-púðar og svo … þetta dularfulla brjóstalímband sem engum sögum fer af hvernig er að ganga með á bringunni daglangt.

Forvitnilegt í meira lagi, þess virði að prófa í stað þess að leggjast undir hnífinn ef ætlunin er að laða fram (með talsverðri lagni) þrýstna brjóstaskoru sem endist (vonandi) kvöldið á enda.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!