KVENNABLAÐIÐ

M A T A R K L Á M: Beikonvafðar Mossarellastangir með DÓNALEGA freistandi ívafi

Þeir eru svo dónalegir þarna á Buzzfeed, að það er engu lagi líkt. Eins og freistingarnar séu ekki nægar meðan maður reynir að troða sér i bikiníið. En sumar freistingar eru jafnvel þess eðlis að ekki á að standast þær … eins og til dæmis þessar beikonvöfðu Mossarella stangir, en á Buzzfeed Food segir einfaldlega:

Taktu fram frosnar Mossarella stangir, vefðu einni beikonræmu um hverja og leggðu á bökunarpappír. Settu inn í ofn á plötu og bakaðu við 200 gráður í 15 mínútur, eða þar til beikonið er fullsteikt og osturinn er bráðnaður. Við mælum með góðri salsasósu til bragðauka.

Og við spyrjum nú … er nokkuð til sem heitir of mikið beikon? 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!