KVENNABLAÐIÐ

Konfektterta með kirsuberjasósu

Við fengum þessa í sumarbústað um daginn og hún sló sannarlega í gegn. Einföld og alveg ferlega góð. Konfektterta með rjómaosti og kirsuberjasósu.

IMG_0534

Kakan:

4-5 eggjahvítur

2 dl strásykur

2 pakkar ritzkex

200 gr pekan hnetur eða valhnetur

2 tsk vanillusykur

½ tsk lyftiduft

Stífþeytið eggjahvíturnar og strásykurinn. Myljið ritskexið í mél. Saxið hneturnar. Blandið ritzkexi, hnetum, vanillusykri og lyftidufti varlega saman við. Bakið við 180 gráður í háu kringlóttu formi í 30-35 mínútur.

Krem:

¼ peli Rjómi  (Fjórðungur úr pela)

2-3 tsk strásykur

2 box philadelfia ostur

1 matskeið flórsykur

Þeytið rjómann og þeytið varlega ostinn, sykur og flórsykur saman við. Berið fram með Kirsuberjasósu með heilum berjum frá Den gamle fabrik.

IMG_0536

 

 

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!