KVENNABLAÐIÐ

SEE YOU AGAIN: Wiz Khalifa trónir á toppi vinsældarlista áttundu vikuna í röð

Wiz Khalifa trónir á toppi Billboard listans þessa vikuna með stórsmellinn SEE YOU AGAIN sem er eitt af titillögum kvikmyndarinnar Furious 7. Drengurinn, sem skildi að vísu við fyrirsætuna og nektardansmeyjuna Amber Rose á síðasta ári, heldur því dauðahaldi í bikarinn og sýnir Taylor Swift, sem gaf út BAD BLOOD fyrir skemmstu – enga miskunn á topplistanum.

Billboard gefur út vikulega vinsældarlista í viku hverri þar sem tíu vinsælustu lög vikunnar eru kynnt – en Wiz Khalifa hefur þannig setið í fyrsta sætinu undanfarnar átta vikur. Listann má sjá í heild sinni á vef Billboard, – en hér fer lag vikunnar – SEE YOU AGAIN.

… og það er að koma helgi!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!