KVENNABLAÐIÐ

Nauðsynleg næring fyrir skeggið

Það er ekki síður mikilvægt fyrir karlmenn að næra húðina sína eins og það er fyrir konur. Gott rakakrem er skyldueign og nú er komið sérstakt krem frá L’Oreal sem er sérstaklega hannað fyrir karlmenn með skegg.

-BNETR546gxPHOmFYxg6r6fKNDmsLp1DTvcSzdDJIAQ

Skeggvöxtur getur nefnilega ert húðina og skapað óþægindi í henni sérstaklega þegar skeggið er að vaxa fyrst um sinn. 3 Day Beard Moisturiser er létt og gelkennt krem sem nærir húðina og þá sérstaklega húðina á skeggsvæðinu og það kemur í veg fyrir kláða og óþægindi af völdum skeggvaxtarins.

Oft þegar skeggið er að vaxa skortir húðina mikinn raka og húðin í kringum skeggbroddana verður sérstaklega þur. Kremið er til þess gert að draga úr öllum þessum óþægindum, gefa húðinni raka og mýkja skeggið um leið.

Gelið er ríkt af efnum sem hafa góð áhrif á húðina eins og E vítamín sem frískar samstundis upp á hana og dregur úr sjáanlegum þreytueinkennum í húðinni. Það inniheldur einnig hreinsandi efni sem draga úr óhreinindum á skeggvaxtarsvæðinu og gefur húðinni raka og róar hana. Svo eru það efni sem mýkja og næra andlitshárin sjálf svo eftir notkun verður skeggið þægilegt og mjúkt áferðar.

Gelkennda formúlan er mjög þunn, gegnsæ, hún er ekki klístruð og kremið fer hratt inn í húðina.

gerard_butler_l_oreal

Þetta er frábært krem sem allir karlmenn ættu að kynna sér betur. Það er einfalt í notkun og er frábært til að hafa í íþróttatöskunni eða sundtöskunni allan ársins hring.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!