KVENNABLAÐIÐ

5 ástæður fyrir því að þú ættir að planka á hverjum degi

Hefur þú prófað að planka? Það er einfalt og þú getur plankað nær hvar sem er. Að planka styrkir ekki bara magavöðvana, heldur getur dregið úr líkum á beinþynningu, styrkt grindarbotnsvöðvana og svona mætti lengi áfram telja. Hér fara fimm ástæður þess að þú ættir að planka á hverjum degi:

Þú getur gert það hvar sem er: 
Ef þú vilt planka þá þarftu ekki að mæta í ræktina eða autt herbergi. Þú getur gert það hvar sem er. Á stofugólfinu, í svefnherberginu eða úti í garði. Gott að vera með mottu undir sér eða þess vegna bara handklæði og plankaðu í 60 sekúndur eða lengur.

Hugsanleg forvörn gegn beinþynningu: 
Beinþynning er rosalega algeng og margir hafa lélega beinþéttni sem eykur líkur á beinþynningu seinna  meir á ævinni, en þannig brotna beinin  auðveldlega. Þetta er falinn sjúkdómur og uppgötvast oft ekki fyrr en þú ferð að beinbrjóta þig. Taktu stjórnina, plankaðu og byggðu upp sterkari bein.

Auðvelt: 
Samanborið við margar aðrar magaæfingar, þá er tiltölulega auðvelt að planka. Ef plankið er gert rétt þá er það ekki bara kviður sem styrkist, því plankið reynir einnig á rass, læri, grindarbotn, handleggi, bak og axlir.

Minnkar líkur á meiðslum: 
Þar sem það að planka eykur styrk á miðjusvæði líkamans þá gerir það líkamanum auðveldara með alla hreyfingu. Planki er örugg aðferð við að byggja upp vöðva og verja mænuna og mjaðmir við hreyfingu.

Bætir líkamsstöðu: 
Ef þú plankar á hverjum degi þá bætir það líkamsstöðu þína og hvernig þú berð þig. Þú er beinni í baki og hefur meiri styrk við allan líkamsburð.

Gangi þér vel að planka!

Hér er 30 daga plankaplan:

30-Day-Plank-Challenge

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!