KVENNABLAÐIÐ

Poppstjarna brjálast: Hilary Duff M A S S A R Tinder – þráir venjulegan mann!

Bandarískar poppstjörnur má venjulega ekki finna á Tinder, en Hilary Duff var hins vegar full alvara þegar hún skráði sig á stefnumótaappið fyrir skömmu síðan. Ekki bara sagði hún frá því að hún væri á lausu OG á Tinder í útvarpsviðtali, heldur stormaði hún á blint stefnumót sama kvöld og tók myndatökumenn með í keilu. Þar sem blinda deitið beið hennar.

hilary2

hilary1

Fjölmiðlar veltu málinu upp og héldu margir að Hilary væri að blekkja – að hún væri að undirbúa raunveruleikaþátt og aðrir sögðu að Hilary væri komin á mála hjá Tinder appinu. Talsmenn Tinder þverneituðu því hins vegar að vera í nokkru samstarfi við söngkonuna, sem sleit sambandi við kyntröllið Mike Comrie í febrúar sl.

Niðurstaða: Hilary hefur engan áhuga á öðrum poppstjörnum og þráir að kynnast venjulegum manni. Svo hún skráði sig á Tinder. Og sagði öllum frá sem vildu heyra. Sem reyndust vera flestir slúðurmiðlar heims.

hilary4

Í viðtali við Ryan Seacrest sagðist Hilary svo hafa skemmt sér konunglega á deitinu en að kvöldið hafi ekki endað á kossi:

Við fórum bara í keilu svo við töluðum ekkert alltof mikið saman. En auðvitað spjölluðum við samt. Hann var ferlega skemmtilegur. Hann kom með vini sínum og vinir mínir komu líka. Hann vann áður við að klippa saman raunveruleikaþætti. Nú er hann að reyna fyrir sér sem leikari og hann var að ljúka við að skrifa handrit. Hann er mjög áhugaverður náungi. En í alvöru talað þá langar mig ekkert að verða ástfangin af leikara … ég held að hann sé í nokkrum störfum.  

screenshot-www.youtube.com 2015-05-15 23-46-31

Reyndar endar sagan á kómískan máta – en næsta breiðskífa Hilary kemur út í júní á þessu ári og mun bera heitið Breathe in, Breathe Out. Svo skemmtilega vill þá til að Hilary samdi lag um Tinder ævintýrið mikla og gott betur en það, skot af vitleysunni sem voru mynduð á umræddu tímabili spanna allt myndbandið. Blinda deitið. Skráningin á appið. Prófílmyndin sjálf. Hilary að svæpa Tinder. Útvarpsviðtalið. Hilary er augljóslega opin bók þessa dagana.

Hér fer myndbandið við lagið SPARKS – eða Hilary Duff á Tinder:

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!