KVENNABLAÐIÐ

BAD BLOOD – Karlie Kloss hrottalega sexí í nýju myndbandi Taylor Swift

Löðrandi heit Karlie Kloss í hlutverki klækjakvendis, svitastorkin Taylor Swift, og leðurklædd Lily Aldridge fara með nokkur aðahlutverka í áður óséðu og funheitu myndbandi við nýjasta lag Taylor; Bad Blood sem frumsýnt verður á Billboard verðlaunaafhendingunni sem fram fer nk. sunnudag.

Taylor Swift í hlutverki CATASTROPHE:

114728dad4139efab3f22bf45f8c1e21b627e352

Einnig fara þau Lena Dunham, Kendrick Lamar, Jessica Alba, Elle Goulding, Hayley Williams, Zendaya og Haile Steinfield með hlutverk í hádramatísku tónlistarmyndbandinu – en samanlagt leika þau ÞRJÁR persónur sem ganga undir nafninu The Trinity, eða Þrenningin á íslensku.

Karlie Kloss í hlutverki KNOCKOUT:

screenshot-www.billboard.com 2015-05-13 18-38-39

Ótrúleg eftirvænting ríkir vegna fyrirhugaðrar frumsýningar, en Taylor hefur deilt nokkrum skotum úr myndbandinu sem er kynnt í kvikmyndastíl og enginn annar en Joseph Kahn leikstýrir.

Taylor-Swift-Bad-Blood-Promo

@TaylorSwift er á Twitter: 

Karlie Kloss fer með hlutverk Knockout (rothögg) ásamt sjálfri Taylor sem ber nafnið Catastrophe (Hamfarir) en öll umgjörðin og kynningarstiklan minna einna helst á lélega B-kvikmynd frá áttunda áratugnum. Billboard verðlaunaafhendingin fer fram nk. sunnudagskvöld vestanhafs en Swift er tilnefnd til verðlauna í 14 efnisflokkum.

Hér fer Bad Blood stiklan & SYKUR hlakkar til sunnudags!

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!