KVENNABLAÐIÐ

Taylor Swift á tvífara, og það er eiginlega bara einum of…

TAYLOR SWIFT
John Shearer/Invision/AP

Svoldið svalt, en líka svolítið óhugnalegt.

Meðlimur Tumblr Kasey ákvað að birta myndir af vinkonu sinni sem vill svo til að líkist Taylor Swift frekar mikið.

„Þegar besta vinkona þín lítur út eins og Taylor Swift þarf maður að taka 100 selfies,“ skrifar hún.

Besta vinkonan lítur frekar mikið út eins og Swift, með klassísku rauðu varirnar og allt saman. Meira að segja Swift sjálf var sammála og endurpóstaði myndirnar á sitt eigið Tumblr.

„Lol hélt að þetta væri ég,“ skrifaði Swift.

Cosmopolitan náði tali af tvífaranum. Hún heitir víst Morgan Jensen, og er yfir sig hrifin að vera líkt við poppstjörnuna.

„Þegar ég sá að [Taylor] hafði endurpóstað myndirnar, hrópaði ég upp, kastaði símanum og var eins í algerri óreiðu næstu sex klukkutíma,“ sagði Jensen við Cosmo. „Taylor er algerlega allt og að hún sá andlitið á mér og hugsaði með sér að ég líktist henni — ég dó!“

Hey, þegar besta vinkona þín lítur allveg út eins og Taylor Swift, þá verðuru bara að gera eitthvað í því!

Þýtt héðan.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!