KVENNABLAÐIÐ

6 förðunarmyndbönd sem kenna þér að fela ör og bólur

Ég gæti skrifað um það þangað ég verð blá í framan um að þú sért falleg eins og þú ert (og feel good tónlistin ómar), en það dregur ekkert úr yfirþyrmandi stressinu sem þú finnur fyrir þegar þú þarft að fara úr húsi með virkilega slæma húð. Allar ráðleggingarnar frá vel meinandi fólki um hvað þú getur gert („Hefurðu prófað húðlækni?“), fordómafull augnaráðin? Ekki gaman.
Á meðan þú gerir þitt og reynir að fá húðina eins og þú vilt, þá eru hérna nokkur videó frá stelpum sem vinna að sama marki. Skiptumst aðeins á leyndarmálum um hyljara.

1. Fyrir ör eftir bólur og rósrauða á dekkri húð. Prófaðu ráðin frá Raji.


youtube.com

Raji er mikill aðdáandi þess að nota dermarolling til að berjast gegn örum eftir bólur. Hún notar bareMinerals Prime Time BB Primer Cream in Medium, CC Cream, og Vasanti hyljara sem er frábær fyrir dökka bletti. Ef það er erfitt að finna þessar vörur þá má prófa td. Laura Mercier Secret Concealer.

2.  Aðferð Carly Humbert til að vinna með ljósa þurra og bólótta húð er frábær.



youtube.com

Hennar rútina er þannig að hún lætur primer vera á í mínútu. Hún notar  Kiehl’s grunn áður en hún setur á sig BB cream og svo  L’Oreal True Match Super Blendable Foundation.  Lioele BB Cream kremið sem hún notar helst er frábært fyrir þá sem þjást af þurri húð. „Það er súper rakagefandi, þannig að ef þú ert með þurrar bólur og flagnandi húð, þá gefur þetta raka og er góður grunnur. Svo hylur þetta einstaklega vel“. Það eina sem er að varðandi BB kremið er að það er bara til í einum tón. Til að fá fjölbreyttari tóna þá er Maybelline Dream Fresh BB Cream, Dream Fresh BB kremið frá Maybelline möguleiki. Grunnurinn frá L’Oreal er nothæfur líka og flagnar ekki.

3. Kennslumyndband Omabelle er mjög gott fyrir alla sem eru með feita húð, dökka bletti og bólur.

6 Makeup Tutorials For Acne Coverage That Will Actually Help

youtube.com

Hennar uppáhalds vörur snúast um að hafa hemil á húðinni og hylja til langs tíma: MAC Oil Control Lotion, MAC Studio Fix Fluid Foundation í NC45 og L.A Girl Pro Concealer.

4. Fyrir alvarlegar blöðrur og bólur þá er, Elaine sú sem hægt er að læra af. (svona var húðin hennar þegar hún byrjaði á Accutane)


youtube.com


youtube.com

 

youtube.com

Elaine notar mikið Lioele Triple Solution BB Cream. Til að hylja virkar, MAC Pro Longwear Concealer almennilega. Þú ættir að bletta létt yfir, ekki klína á (andlitið þitt er ekki bílrúða og puttarnir þínir ekki rúðuþurrkur).

5. Svo megum við ekki gleyma Cassandra Banksonog hennar ráðum.

6 Makeup Tutorials For Acne Coverage That Will Actually HelpVia youtube.com

youtube.com

Hennar ráð innihalda notkun á Hourglass Veil Primer, Make Up For Ever HD Foundation, MAC Studio Finish Concealer, og MAC Fix +. MAC að eilífu.

6. Raven Elyse’s er líka mjög góð og einblínir á að hylja ör og fá fram þennan draumkennda og lýsandi bjarma.

6 Makeup Tutorials For Acne Coverage That Will Actually Help
Af youtube.com


youtube.com
Hún mælir með: E.L.F Primer og Acne Fighting Foundation  L.A. Girl Pro Concealer (aftur!), Make Up For Ever Setting Powder, Kat Von D Lock-it Tattoo Foundations (hún blandar saman tónum til að fá rétta áferð). Til að innsigla þá er hún mikill aðdándi  Kat Von D Lock-It Powder Foundation fyrir matta og jafna áferð.

Uppáhaldið fyrir erfiðar bólur virðast vera LA Girl Concealer, Lioele BB Cream og MAC Concealer. Ertu með þetta á snyrtiborðinu þínu líka?

Acne-prone favorites seem to be L.A. Girl Concealer, Lioele BB Cream, and MAC Concealer. Are they in your stash too?

Þýtt og staðfært héðan.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!