KVENNABLAÐIÐ

Vero Moda og Tanya Burr gleðja í tilefni Konudagsins!

Konudagurinn er dagur sem við erum allar sammála um að eigi að halda hátíðlega, hvort sem það er með gjöfum eða góðum mat.

Vero Moda og Tanya Burr hafa tekið höndum saman og ætla að gleðja allar konur sem versla í Vero Moda Smáralind eða Kringlunni með glæsilegum kaupauka um helgina.

Tanya Burr
Tanya Burr

 

 

 

Allar konur sem versla í Vero Moda um helgina fá að velja sér glæsileg gerviaugnhár frá sem Youtube stjarnan Tanya Burr hannaði. Kaupaukinn verður í boði bæði laugardag og sunnudag.*

tanya 2

Augnhárin komu í sölu hér á Íslandi í lok ársins og hafa nú þegar vakið mikla athygli fyrir gæði. Hárin eru virkilega þægileg í notkun, með þeim fylgir líka lím svo það er allt til staðar til að setja upp falleg augnhár um helgina. Augnhárin ramma augun fallega inn og gefa þeim fullkomna umgjörð hvort sem þið viljið að augun verði meira hringlaga eða möndlulaga. Augnhárin eru hinn fullkomni fylgihlutur til að fullkomna nýja Vero Moda dressið.

vero 6

Auk þess að fá að velja sér augnhár geta viðskiptavinir skráð sig í pott og átt kost á að fá eintak af nýrri og glæsilegri bók sem Tanya Burr var að gefa út. Bókin heitir Love Tanya og er lífstílsbók þar sem bloggarinn gefur frábær ráð varðandi förðun, húðumhirðu, stíl og auðvitað um ástina. Bókin hefur slegið í gegn um heim allan og það má með sanni segja að hún sé ómissandi fyrir aðdáendur dömunnar að eignast.

vero 5

Það er glæsilegt vöruúrval í Vero Moda verslununum þessa dagana. Búðirnar eru fullar af nýjum vörum og þar sem það styttist nú vonandi óðum í vorið er um að gera að gleðja konuna í ykkar lífi með fallegri vorflík.

*Tilboðið gildir á meðan birgðir endast

vero 2

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!