KVENNABLAÐIÐ

31 örbylgjuréttur sem er á mörkunum að vera alger snilld

1. Örbylgjurísotto.

Microwave Risotto
brit.co

Svo miklu auðveldara en að hangsa við eldavélina og hræra reglulega. Þrjár æðislegar uppskriftir hérna.

2. Súkkulaðibitakaka.

Þetta er ekki bara fljótasta leiðin til að fullnægja smákökuþörfinni, heldur er þetta líka fín leið til að búa til smáköku án þess að háma í sig tíu stykki í leiðinni. Uppskrift hér.

3. Beikon í örbylgjuna.

Engin fita lengur sem þarf að skrúbba af uppáhalds pönnunni. Uppskriftin er hér.

4. Glútenlausar örbylgju Enchiladas.

Þú getur líka notað venjulegar tortillur ef þú vilt. Hvort sem þá tekur þetta bara 10 mínútur að elda. Uppskriftin hér.

5. Súkkulaði og hnetusmjörs bollakaka.

Það erfiðasta við að búa til svona gúmmelaði er að deila því með öðrum. Uppskrift hér.

6. 2-mínútu franskt brauð

Smá síróp með auðvitað. Uppskrift hér.

7. Vegan, kornlaust Enskt möffin.

Örsnöggt og einfalt. Uppskrift hér.

8. Stökkir hnetusmjörsbitar.

Uppskrift hér.

9. Nutella bollakaka.

Aðeins flóknara en þegar maður hámar í sig Nutella beint úr krukkunni. Uppskrift hér.

10. Örbylgjuð morgunverðarsamloka með eggjahvítu og osti.

Smakkast örugglega æði með Enskum möffins, ef þú vilt gera þetta almennilega. Uppskrift hér.

11. Steiktur hvítlaukur í örbylgjunni.

Því að steiktur hvítlaukur gerir ALLA rétti betri, en stundum nennir maður ekki standa í að steikja. Uppskrift hér.

12. Örbylgju Granola

Örsnöggt heilsufæði. Uppskrift hér.

13. Örbylgju sítrónubitar.

Fæst bráðum í næsta bakaríi, eða bara mjög mjög nálægt þér, því þú sko býrð þá til. Uppskriftin hér.

14. Grænmetisflögur með sýrðum rjóma og lauk.

Reddaðu snakkþörfinni strax! Uppskrift hér.

15. Örbylgjuð sætkartafla.

Tekur svo mikið styttri tíma en þetta venjulega ofnbras sem tekur klukkutíma eða meira. Uppskrift hér.

16. Ropa Vieja í örbylgjuofni.

Klassískur nautakjötsréttur sem heillar bragðlaukana. Uppskrift hér.

17. Mínútu kaffikaka fyrir vegan.

Ferskari en allt þetta sem maður myndi kaupa í búðinni á leið heim. Uppskrift er hér.

18. Örbylgju kjúklingur og dumplings.

Eins þægilegur þægindamatur og hægt er að búa til. Uppskrift here.

19. Hrærð egg fyrir örbylgjuofn.

Með því að hræra í eggjunum á 45 sekúndna fresti þá færðu mjúka og gómsæta eggjahræru, ekki þykka og seiga. Uppskrift hér.

20. Örbylgjuð pönnukaka, í krukku.

Taktu krukku af pönnukökudeigi með þér í vinnuna, hitaðu í örranum og fáðu almennilegan pönnsumorgunmat! Uppskrift hér.

21. Örbylgju Ratatouille.

Sjáðu bara hvað þetta er fallegt! Uppskrift hér.

22. Kanilrúllur fyrir örbylgjuna.

Heimalagaðar kanilrúllur eru ógeðslega erfiðar því þú þarft að nota fullt af geri og bíða svo ógeðslega lengi. Þessi uppskrift er tilbúin á nokkrum mínútum! Uppskriftin hér.

23. Makkarónur og ostur.

Einfaldara en einfalt úr pakka, og örugglega bragðbetra. Uppskrift hér.

24. Örbylgju-skarkoli með sítrónu og piparrót.

Gestirnir þurfa ekkert að vita hvernig þú töfraðir fram þennan rétt. Uppskrift hér.

25. Fyllt örbylgjukartafla.

Uppskrift hér.

26. Örbylgju apabrauð.

Uppskrift hér.

27. Örbylgju Papillote lax.

Að elda lax í bökunarpappír (papillote) er auðvelt, en hérna förum við glænýjar leiðir. Uppskrift hér.

28. Örbylgju kjúklinga Penne Al Fresco

Kjúllinn í þessari uppskrift er foreldaður, en pastað er soðið í örbylgjunni í þessari gómsætu blöndu af soði og tómötum. Svo fer osturinn og kjúklingur saman við. Uppskrift hér.

29. Örbylgjuð kanilepli.

Ekkert mál, eiginlega einfaldara en það. Uppskrift hér.

30. Örbylgju steikt hrísgrjón.

Uppskrift hér.

31. Ristaðar örbylgjuhnetur.

Venjulega tekur það ferlega mikin tíma og fyrirhöfn að rista hnetur, og svo brúnast þær aldrei jafnt. Svo er alltaf séns á að maður brenni hneturnar og geri þær beiskar. Þá er mikið auðveldara og einfaldara að nota örbylgjuofninn. Leiðbeiningar hér.

Lauslega þýtt héðan.

Hæ!

Takk fyrir heimsóknina á sykur.is. Okkur þætti það alls ekki leiðinlegt ef þú myndir fylgja okkur á Facebook. Við erum ekki óþolandi þar. Í alvöru!